Welcome to Miamidólgz

Þá er ég komin til Miami og lífið er ljúft. Hitinn á að vera farinn að lækka en einhverra hluta vegna hefur hann ekki gert það svo síðan ég kom hefur verið 33-34°c hiti. Sólin er fáranlega sterk og ég fattaði það ekki fyrr en ég brann þokkalega í andlitinu eftir 3 tíma sólbað. Fór svo á ströndina og sæll hvað ég er brunnin á lærunum maður.

Ferðalagið var auðvitað bara fáranlegt en svo týpískt fyrir mig. Lenti í Boston og mætti þar starfsmönnum tollsins sem ákváðu að láta mig hlaupa á milli sín, sveitta af stressi. Svo hélt ég að ég væri heavy heppin þegar ég lenti á kvenkyns tollverði, ljóshærðri píu, en neinei - hún yfirheyrði mig eins og ég væri afkomandi Osama bin Laden. Hressandi! Helga og Einar sögðu mér seinna meir að það væri alltaf best að fara til karlmanns.
Þegar ég var svo komin í gegnum tollinn labbaði ég á information desk þar sem eldri maður í ljótari kantinum sat, og virtist bara nokkuð ágætur. Ég heilsaði og hann rétt drullaðist til að segja hæ við mig án þess svo mikið að líta upp. Sagði mér svo að ég gæti ekki labbað á Hilton hótelið og hvað þá geymt töskuna mína þar og að það væru engin waiting rooms sem ég gæti lagt mig í á meðan ég væri að bíða, frá 7 um kvöldið til 7 um morguninn! Þá fékk ég kökk í hálsinn eins og aumingi og bað Icelandair flugfreyjurnar um að hjálpa mér. Elsku Íslendingar. Þarna var ég semsagt, vinalaus í Boston - þangað til ég rataði á Hilton þar sem ég eignaðist vin. Ljótan og sköllóttan töskubera sem leyfði mér að geyma töskuna mína og sitja á stól hjá honum. Vá hvað það var fyndið og asnalegt. En það var svosem í lagi, þangað til að ég ákvað að byrja að æla. "Smá detox áður en ég held í Ameríkusukkið" hugsaði ég. Þjónninn á veitingastaðnum sem ég sat á þegar þetta gerðist sagði bara: baby baby oh honey! og gaf mér ginger ale og crackers, sem gerði nótabene 0 fyrir mig. En hún var sæt í sér þessi elska, gleymdi samt að tipsa hana.

Þarna sat ég semsagt á veitingastað innan um feita bandaríkjamenn sem tróðu sveittum hamborgurum og dísætum eftirréttum í grímuna á sér eins og þeir fengju borgað fyrir það, á meðan ég kyngdi ælunni og skalf eins og eiturlyfjafíkill í fráhvörfum. Ekki töff. Svo ég ákvað að eina í stöðunni væri að kaupa sér hótelherbergi á Hótel fokking Hilton. Ódýrasta herbergið var á 200 dollara eða 24 þúsund krónur og takið eftir að ég betlaði afslátt en samt kostaði þetta svona mikið. Svo ég lagðist uppí rúm og náði þriggja tíma svefni fyrir 24 þúsund krónur íslenskar. Helvítis íslenska króna og helvítis útrásarvíkingar.

Ég komst nú samt á áfangastað á endanum og var rosalega glöð að sjá Magneu á flugvellinum í Fort Lauderdale. Tókum rúnt og fórum á South Beach að borða. Ég var örugglega búin að vera á Miami í 2 tíma þegar ég gerði mér grein fyrir hvað allir hafa þessa svakalegu þörf til að spjalla. Maður má ekki hreyfa sig og þá eru allir þjónar farnir að spyrja og spyrja. Svo er ég svo argandi túristaleg hérna af því að ég er svo pale eins og nágrannakona mín sagði að allir spyrja mig: "Are we travelling?" "Yes, I'm from Iceland" "Oh you're from Zealand?" Nei, Ísland!

Í gær fór ég í mollið til að kaupa mér eitt lítið krem. Konan sem afgreiddi mig var ferlega nice og byrjaði að spjalla og spjalla. Spurði mig svo hvort ég vildi láta hana do my make up og auðvitað vildi ég það. Ég bað um natural förðun og vá, ég hef aldrei á ævinni verið svona misskilin. Þetta var ekki natural fyrir fimmaur, ég kom út með fjólubláan augnskugga uppá augabrúnir, með þykkt lag af meiki, púðri og sólapúðri og til að kóróna þetta allt saman setti hún á mig vínrauðan varalit og varablýant að auki. Ég var eins og versta flokks miðaldra vændiskona. En svona gekk ég um mollið í smástund því mér fannst þetta svo ógeðslega fyndið. Snilld að enginn þekki mann, er að pæla í að gera þetta að vikulegum atburði. Ég fékk reyndar ókeypis krem og maskara út á þetta og boð um að koma í free facial, en ætli hún taki þá ekki bara húðina af mér?

Stelpur mínar, hvað hefur drifið á daga ykkar? Segið mér, segið mér! :)

Anna Gerður

this is the first day of my lifedólgz


Ég elska skyndibita, ég elska hamborgara með mikilli sósu, ég elska sveitta pizzu með miklum ost og mér finnst ekkert betra en að skola þessu niður með ísköldu kóki ! Stundum held ég að guð sé að refsa mér, refsa mér fyrir að vera einn mesti nautnaseggur heimsins eða kannski er hann bara svona grimmur brandarakarl ?
Ég bý semsagt hjá fólki sem elskar Ekki skyndibita, þau elska ekki hamborgara með mikilli sósu né hafa þau smakkað pizzu, reyndar núna því ég bakaði þessa mögnuðu pizzu. Hún var reyndar með engum ost. Því þau borða ekki ost, þau borða heldur ekki smjör né borða þau hvítt brauð! Þau drekka sjaldan kók, þau kaupa um helgar Faxi kondi light sem er einn versti drykkur sem ég hef smakkað, ég píni honum niður því þetta er sódavatn en ekki bara tært vatn !

Þau eru samt frábær, þau kaupa alltaf ost&smjör handa mér, bjóðast til að kaupa allt brauð sem mig langar í eða snakk og nammi sem ég vill. Ég leit einmitt inn í búr áðan og sá þar 5 poka af lays, þau borða ekki flögur. Þessir pokar eru handa mér. Þessi saga lýsir þeim vel. Reyndar lýsir hún dönum vel. Allir eru svo ótrúlega hjálpsamir og indælir. Konurnar á bókasafninu hérna sögðu að það væri ekkert mál að panta bækur á íslensku fyrir mig. Fyrsta skipti sem ég kom á leikskólann komu allrar fóstrunar framm og tóku í hendina á mér og buðust til að aðstoða mig í öllu sem ég þyrfti hjálp á að halda. Hér heilsast líka allir þó þeir þekkjast ekki baun, ég sem heilsa ekki einu sinni fólki á Eskifirði sem ég þekkt alla mína ævi svo mér brá. 

Danir voru líka valdir hamingjusamasta fólk í heimi. Ég er þó búin að finna svarið við hamingju þeirra, það er Bjór!
Hér er sko alltaf tilefni til að fá sér bjór skiptir ekki máli hvort klukkan sé tíu um morgun eða tíu um kvöld. Ég kíkti einmitt á festival sem var niðrí bæ síðustu helgi, klukkan var tvö og það voru tónleikar í gangi og umþaðbil hver einasti maður var með bjór, allir dillandi sér og syngjandi með. Ég gerði heiðarlega tilraun til að kaupa kók en konan horfði bara á mig og sagði að þau seldu bara bjór í dag!   

Það kemur mér samt á óvart hvað danir vita lítið um ísland. Ég var spurð að því um daginn hvort það hefði ekki örugglega verið á sjöunda áratugnum þegar íslendingar fengu sjálfstæði frá dönum. Ég átti ekki til orð, þetta er reyndar kannski ekki jafn stór hlutur í sögu danmerkur og þetta er í sögu íslands en ég var samt sjokkeruð! 
Bruno reyndi líka að sanfæra mig um daginn að stærstu mistök sem ísland hefði gert væru að sækjast eftir sjálfstæði, ég svaraði bara jejejeje! Það er samt alltaf ein spurning sem bregst ekki þegar fólk veit að ég er frá íslandi og það er, hvernig er ástandið þarna, eruð þið ekki bara alveg gjaldþrota og er fólk ekki nánast því búandi á götunni eða stingandi af úr landi. Ég hata þessar spurningar. Ég brosi bara og segji jajajajaja 

Ég fór í afmæli um daginn og einn maðurinn þar var alveg sannfærður um að ég væri frá Grænlandi- Ekki nóg með það þá bað hann mig um að segja sér söguna afhverju ísland héti ísland og grænland héti grænland. Ég bað hann bara vel að lifa. Ég kann þessa sögu svona í góðum stikkorðum á íslensku get ekki ímyndað mér hvernig hún hljómar á dönskunni minni.

Ég er samt orðin mikil áhugamanneskja um dönsku konungsfjölskylduna. Ég fór einmitt til Amalíuborgar um daginn að skoða höllina þar og fór svo síðustu helgi til Hillerod að skoða höllina sem er ekki í notkun lengur og nú getur fólk borgað sig inn og farið í sýningartúr. Mér fannst það geðveikt, höllin er geðveik. Næst á dagskrá er sumarbústaðurinn í Fredreksborg en ég ætla að kíkja þangað þegar ég verð búin að lesa mér meira til um sögu húsins.  

Lífið er voðalega rólegt og gott hérna, ég er alveg komin inn í rútínuna þeirra, það erfiðasta er að þau vakna alltaf klukkan 06:30 og þá meina ég alltaf, meira að segja um helgar. Það var einmitt fyndið fyrstu helgina mína svaf ég bara til 11:00 og skreið þá á labbir og rölti upp, stóðu Pia og Bruno í eldhúsinu með þessar þvílíku áhyggjur af mér - ég skildi ekki neitt í neinu en þá vissu þau bara ekki að fólk gæti sofið svona lengi, þau héldu að ég væri veik! Þau eru samt ennþá alltaf jafn hissa hvað ég get sofið lengi - ég er ekki enn búin að segja þeim að ég gæti alveg sofið í heilan sólarhring ef mér langaði!

Ég held það sé nú ekki fleira að sinni. Ég hlakka til að fá creisý sögur frá Miami eða ljóðaflutning frá Roskilde

-Þórdís 

ljóðdólgz

Menntaskólinn kláraðist í vor

Enginn var þá með svínaflensuhor

Í enda skólanns vorum við sæði

Og öllum fannst við vera æði

Að útskrift var komið

Okkur fannst það eitthvað loðið

Með Ragga Bjarna við sögðum bless

En hittumst svo seinna sumars hress

LungA var tekið með stæl

Og þá dugði ekkert útskriftarvæl

Í þynnku við keyrðum upp dalinn

Helgin fékk 10 ef 0-10 var skalinn

Verslunarmannahelgin gekk í garð

Stefán Hilmars fyllti þá stórt skarð

Pottaparty hjá Lindu Lalla

Og fullt af veitingum sem fylltu tóma malla

Svo fórum við að yfirgefa klakann

Lilja fór með makann

Þórdís fór og passar börn

Það verður um það bil árs törn

Anna Gerður fer eftir mánuð

Þar sem hún verður lánuð

                                   Lilja Sif



Love you guys!

dólgz

Ókei nú segi ég bara SÆLL.... Nánar

Dólgarnir fara að komast á þrítugsaldurinndólgz

Hún átti afmæli á fimmtudaginn, hún átti afmæli á fimmtudaginn, hún átti afmæli á fimmtudaginn, hún átti afmæli á fimmtudaginn.
Ég er að sjálfsögðu að tala um hana Önnu Gerði aldursforseta!
Gamla hélt uppá afmælið sitt í skarzó á fimmtudaginn var með dinner og öllu tilheyrandi. Boðsgestir og afmælisbarn héldu svo á Cafe Amour þar sem gellan fékk afmælissöng frá öllum á staðnum!
Anna lét þá einhvern veginn svona út:... Nánar

Annálldólgz

Áramótaannáll þar sem stiklað er á stóru.

Mikluflottari píur byrjuðu þetta nokkuð viðburðarríka ár víðsvegar um landið, Anna Gerður og Lilja Sif á Eyrinni en Þórdís Jóna á Eskifirði. Anna Gerður fékk fallegt og dauðadrukkið sms að austan eftir miðnætti á gammelårs sem gladdi hana ákaflega. Síðar um kvöldið hittust Lilja og Anna í syndabælinu Sjallanum þar sem þær enduðu kvöldið á að skandalisera allverulega, eða var það kannski bara Anna Gerður?... Nánar

Rúnar Júldólgz

Jæja stúlkukindur nú er mál að girða í brók og bjarga þessari síðu frá algjöru berlínarmúrsfalli.

Mig langar að tileinka Rúnari Júlíussyni þessu bloggi. Blessuð sé minning hans.



Ég var í G 28 þegar ég frétti af þessum ömurlega atburði að hann hafi fengið hjartaáfall og dáið. Þó ég hafi ekki þekkt hann persónulega varð mér um og ó. Hann var og verður alltaf legend og einn sá allra flottasti í bransanum. Mitt uppáhaldslag með kauða og hljómum er Fyrsta Kossinn en það lag minnir mig áspart á hann Jón Stefán Friðjónsson sem ætlaði eitt sinn í 1 bekk í Lundarskóla að bjarga Þóru Björgu og Hildi Söru frá Magga Villa því hann var allaf að reyna kyssa þær. En Maggi Villi lét hann ekki stopa sig heldur spellti einum sætum kossi á Jón og þar með var fysti kossin hans Jóns kominn í hús. Eftir það hef ég sungið þetta lag fyrir Jón til minningar um hans fyrsta koss.

Hvíldu í friði Rúnar.

Lillz 

Það sem þarf að hafa með til Rhodosdólgz

Wifebeater, helst ekta hvítan karla
Sólarvörn - hina ýmsu styrkleika og svo sólarolíu til að steikjast létt í endann á tan sessioninu mikla
Verkjatöflur, fullt
Stuttbuxur, svona hæfilega sóðalegar
Sandala, ekki gellusandala sko, bara svona adilettur
Evrópska sjúkratryggingakortið
Myndavél
Fullt af blingi og glimmeri (ég á eftir að ákveða hvað verður gert við það en það verður eitthvað awesome)
Eitthvað til að getað blastað dólgslega tónlist í herberginu
Dólg - bara svona in general
Sólgleraugu - helst shutter shades

Og svo bara eitthvað meira white trash dót ef þið eigið. Annars held ég að það sé bara rugl að vera að taka eitthvað meira með, þetta er að mínu mati alveg ultimate travel tékk listi til Rhodos. Kannski vegabréfið jú, það er svona skemmtilegra.

Ókei?






þetta er dólgur í lagi




Þessi færsla var í boði Google image search


Think it's funny now?dólgz

Nice weather man! What's going down in the AK city! JooJoo good stuff around! Get rich or try smoke your shit!

Geggjað veður maður. Hvað gengur á á Akureyriarborginni! Jáá góðir hlutir í kring. Vertu ríkur eða reyndu að reykja skítinn þinn!

Lokaverkefni í ens 502

múmúdólgz

Jæja dólgz! HVAÐ ER AÐ FRÉTTA?

Ég er alveg brjáluð sko. Ég er á helvítis næturvöktum Lunga helgina en ég barasta verð að redda mér fríi því ég sakna þín svo mikið Þórdís Jóna. Ég er svo til í að endurupplifa (er það orð?) ýmsa atburði og gullkorn sem áttu sér stað á síðasta Lunga, já og svo er ég alveg til í að sleppa öðru sem gerðist þarna. Lol.

En jæja girls, ég segi að það sé tími til kominn að blása lífi í þessa stórmögnuðu síðu. Það má ekki láta hæfleika okkar sem pennar renna í sandinn og fara til spillis. Lilja, þú ert að sjálfsögðu bara næsti Jónas Hallgrímsson, allavega með þessu áframhaldi. Hefurðu aldrei spáð í að fá þér aðgang á ljod.is?

Ég er sko ein heima núna (sem er reyndar notalegt í nokkra daga) en málið er að ég á engan pening og þar af leiðandi er ég að lifa á skyri og cheeriosi. Mjólkin er meira að segja að verða búin. Svo á ég heldur engan pening til að kaupa mér áfengi og ég veit bara ekkert hvað ég á að gera þar sem að ég er svona semi búin að bjóða fólki í matarboð um helgina en ég á engan mat til að gefa þeim og svo vita allir heilvita menn að maður heldur ekkert matarboð án þess að hafa áfengi við hönd. Am i right or am i right? En Tótalicious, ef að þig langar að gera eitthvað spontanious næstu helgi þá skaltu bara bruna norður og koma í matarboð með engum mat og tveimur litlum slots sem ég stal í afmæli síðustu helgi. Ég er alveg tilbúin í að deila þeim með þér og svo verður kannski cheerios og rúsínur í skál. Ég er partýhaldarINN, það er greinilegt.

En jæja babes, stay fresh.


Talandi um fresh fólk - Einar hárlaus og ég eitthvað fáranleg eins og vanalega. ps . hann er samt ennþá kallaður Krulli og það er geðveikt fyndið, sérstaklega þegar ókunnugt fólk er í kring.

Aðalvalmynd

Klukkan

Auglýsing

Undirsíðukubbur

Prófíll

  • Nafn: dólgz
  • Staður: akureyri
  • Atvinna: Fyrrum menntakonur, núverandi lífskúnstnerar
  • Um mig: Fyrrum atvinnudólgar á góðri leið til prúðmennsku