Annálldólgz
Mikluflottari píur byrjuðu þetta nokkuð viðburðarríka ár víðsvegar um landið, Anna Gerður og Lilja Sif á Eyrinni en Þórdís Jóna á Eskifirði. Anna Gerður fékk fallegt og dauðadrukkið sms að austan eftir miðnætti á gammelårs sem gladdi hana ákaflega. Síðar um kvöldið hittust Lilja og Anna í syndabælinu Sjallanum þar sem þær enduðu kvöldið á að skandalisera allverulega, eða var það kannski bara Anna Gerður? Áramótaheitið er allavega að aflétta helvítis áramótabölvuninni og eru Mikluflottari bjartsýnar á að það takist.
Þetta kvöld gat bara ekki endað vel
Janúar leið með prófum og tilheyrandi stressi og ómerkilegu 19 ára afmæli Önnu Gerðar. Það gleður hana ósegjanlega mikið að í næstkomandi próftíð verður hún búin í prófum þann 19. jan og verður hún því ekki í prófum á afmælisdaginn sinn í fyrsta skipti síðan í 10. bekk, sem þýðir aðeins eitt – fancy dinner og fimmtudagsdjamm þann 22. Janúar 2009.

Kannski það verði bara kántríþema í tvítugsafmælinu í janúar?
Febrúar situr ekkert agalega vel í minni en hann kom eiginlega og fór eins og hendi væri veifað. Mikið var um mjöðdrykkju þennan mánuðinn en Linda Björk hélt uppá afmælið sitt í partyhöllinni að Sólvöllum í byrjun febrúar. Gleymda janúarafmælisbarnið hún Anna Gerður fékk að troða sér með í afmælið og fengu þær stöllur glæsilegar gjafir, allt frá blómvöndum og áfengis til syngjandi nachos scalar og grill/golfsetts frá Möðruvallastrætismafíunni. Nokkrum vikum seinna hélt Lilja uppá afmælið sitt í Grundó með eftirminnilegum hætti þar sem strákar fóru í sleik, Ignition með R. Kelly var sungið hástöfum og síðar um kvöldið braust út agaleg Bó Hall stemming, en Vigfús Fannar sá að mestu leyti um að snúa bekkjarsystrum sínum í danshringi á stofugólfinu, enda einstakur áhugamaður um bekkjarsystur sínar. Ónefnd stúlka fór í sleik við Þröstinn góða, en eins eitt sinn var sungið: “Þröstur minn góður, þar er stúlkan mín” og það voru orð að sönnu í febrúar!

Hötum ekki að fá gjafir - báðar dökkhærðar, gott að það er búið í bili

Hið eina sanna afmælisbarn

Lilja og kæró edrú, þetta var þeim sem Lilja var alltaf að keppa, gott að það er búið! Logi er hinsvegar voða lítið edrú þarna.

Afmælisbarnið

Bó fokking Hall
Í mars og apríl gerðist alveg örugglega eitthvað agalega gott en ritari minnist þess ekkert sérstaklega, enda hefur hún verið óvenju mikið rakaskemmd þetta árið. Eitthvað rámar hana þó í Lilju Sif að dangla í einhverjar chicks, en Anna Gerður kom henni alveg á það eftir áramótin. Þórdís Jóna deitaði umtalsvert á þessu tímabili og slökkti á vangaveltum móður sinnar um að hún og Íris Hannah væru í raun elskendur.
Vorprófum var fagnað með stórskemmtilegu bekkjarpartýi hjá Önnu Guðrúnu, sem var aðeins eitt af fjölmörgum bekkjarhittingum sem G-unit getur stært sig af, en það verður bara að segjast að þessi bekkur einkennist af eintómum snillingum og krúttbollum sem verður sárt saknað. Eftir þetta agalega teiti héldu bekkjarfélagarnir flestöll saman niður á Kaffi Akureyri þar sem óprúttnir aðilar klipu óspart í rassinn á Þórdísi Jónu, Anna Gerður fann sér pólskan eiginmann en ákvað að ditcha hann fyrir eitthvað sem síðar meir kallaðist “Stærstu mistökin 2008”. Engu að síður mjög gott kvöld, það er ekki það.

Skinkupósið

Svona gerir maður á Eskifirði
Í byrjun júní héldu bekkjarfélagarnir í G-inu á Greifann þar sem Þórdís Jóna hélt eftirminnilega “Ég á eftir að sakna ykkar svo mikið stelpur” ræðu með tilheyrandi gráti og gnístan tanna. Ef ég hugsa út í það hafa flestar stundir okkur með áfengi við hönd eftir þessa, einkennst af svipuðum játningum og tárum, allavega kökk í hálsi – sem er bara gott og blessað því eins og flestallir vita þá er bara ekkert líf eftir menntó!

Sumardjamm - Anna Gerður orðin ljóshærð og eru flestir sammála um að það sé alveg málið.
Alvara lífsins tók við og allt í einu þurfti maður að fara að vinna til að safna einhverjum peningum því maður var víst að fara til Rhodos í 10 daga fyllerísferð. Þórdís og Lilja tóku á því allt sumarið og unnu myrkrana á milli í tveimur vinnum eins og að þær væru einstæðar mæður með þrjú svöng og allslaus börn heima. Anna Gerður tók því bara rólega á elló í 80% vinnu þar sem hún kúrði með gamla fólkinu og söng Undir Bláhimni með þeim hástöfum. Í dag á hún engan pening því hún tapaði spariféinu í bankahruninu en hún heldur ótrauð áfram í leit að fyrivinnu í kreppunni.
Anna Gerður skellti sér til Seyðisfjarðar á Lunga með Lindu Björk og Sunnu Lind, sem eru dyggir aðdáendur Mikluflottari. Þar hittu þær Þórdísi Jónu sem var óendanlega glöð að hitta fólk úr siðmenningunni. Þórdís sagði okkur skemmtilegar sögur úr vinnunni; allt frá 14 ára drengjunum sem reyndu við hana til gömlu kallanna í vinnuskúrnum sem sögðu bara: “Þetta er aaallt í lagi Þórdís mín” þegar hún bakkaði á staur OG samstarfsfélaga sinn á vinnubílnum og braut bílinn svo á endanum með brussulátum sínum. Vegna fjarlægðar við aðaldrykkjufélaga sína um sumarið hafði Þórdís ekki dottið í það í þónokkuð langan tíma sem gerði það að verkum að ekki leið að löngu þar til svífa fór allverulega á hana og endaði hún á að ganga um tjaldsvæði Seyðisfjarðar með það að markmiði að lemja alla karlkynsgesti þess. Það tókst því miður ekki. Ýmislegt fleira gerðist á Lunga sem ekki er við hæfi að skrifa á veraldarvefinn og með þeim orðum verður punkturinn settur við júlímánuð.

Lunga - rétt áður en druggið byrjaði
Ágúst leið hægt, enda biðu flestir óþreyjufullir eftir Rhodosferðinni í lok mánaðarins. Við reyndum að stytta okkur stundinar með því að detta bara nógu oft í það og það tókst alveg, en Verslunarmannahelgina og Menningarnótt í Reykjavík standa uppúr. Forskot var tekið á sæluna daginn fyrir brottför með dulitlu skralli, sem þótti ekki svo sniðugt daginn eftir. Flugferðin út var sú allra lengsta sem Mikluflottari stúlkur hafa upplifað en ó hvað þær voru fegnar þegar þær stigu út úr vélinni á Rhodos – einn sóðalegasti en skemmtilegasti staður við Miðjarðarhafið. Á Rhodos var ýmislegt brallað, sumt sem í dag er hugsað til með mikilli eftirsjá, en flestar minningarnar fylla hjörtu okkar af gleði og hlýju. Svo er bara alveg fullt sem við munum ekki einu sinni eftir en þannig er það nú bara. Barborðadans, súperskemmtisigling, köfunarferð og svo margt fleira stendur þó uppúr sem og setningar eins og: “Ég er alveg að koma”, “Þórdís, ég heyri ekki neitt!” “Hver er með lyklana” og fleiri gleymast seint.

Menningarnótt

Edrúkvöldið, huggulegt.

TAAAAAN

Villaprent klikkaði sko ekki á Rhodos

Heitasti barþjónn Miðjarðarhafsins
En allt tekur enda, og það gerði Rhodos svo sannarlega. Tanið var skilið eftir í tollinum á Akureyrarflugvelli og skólinn tók við í september með stórskemmtilegri busun, en sumir kynntust busunum betur en aðrir. Þrátt fyrir skólaleiða og útþrá á hæsta stigi hafa Mikluflottari og félagar skemmt sér konunglega innan og utan veggja skólans, þá sérstaklega í FÉL403 og HSP203 þar sem þær eru í sérstöku uppáhaldi kennarana. Það má reyndar segja að Geir Hólmars hafi alveg reddað þessari önn fyrir okkur – Ó hvað ég vildi geta skálað við hann og gefið honum einn rembings á kinnina á gamlárs!
Anna Gerður, Hulda Rún og Anna Guðrún fóru á Airwaves í október þar sem Anna Gerður og Hulda Rún urðu gjaldþrota, en það er eitthvað sem þær vilja aldrei þurfa að upplifa aftur. Þær mega þó eiga það að þrátt fyrir að eiga ekki pening fyrir einni með öllu á Bæjarins bestu litu þær allavega vel út með nýjum snyrtivörum og háum hælum.
Eftir Airwaves var agalegt trúnó tekið á klósetti fatlaðra í Menntaskólanum á Akureyri með skemmtilegum afleiðingum, en sú stund var svo eftirminnileg að í rauninni ætti að friða blessað klósettið. Veturinn hefur reyndar einkennst af klósetttrúnóum, eða bara trúnóum yfir höfuð, hlátri, gleði, dansi og væntumþykju og er stefnan sett á grimmt áframhald í þeim dúr á næsta ári, þar sem öllum er boðið með. Til að fá að vera með þarf reyndar mjög oft að fylgja þema, en við höfum haft þónokkur þemakvöld í vetur sem gerir allt miklu skemmtilegra, það er bara staðreynd.

Trúnó á Tunglinu - við mælum alveg með því

Hver man ekki eftir Bloodgroup kvöldinu? Eða réttara sagt, hver man eftir Bloodgroup kvöldinu?

501 - Þóra Björg

Lilja og drengirnir

Þema, best!

501 sameinaðar!
Við vonum að þið hafið átt gleðileg jól og óskum ykkur gleðilegs nýs árs, með þökk fyrir allar skemmtilegu stundirnar á árinu sem nú er að ljúka. Sjáumst á dansgólfinu!
