Sumarið er að komadólgz
Eftir prófin ég ætla að drekka
Jafnvel svo mikið að ég dey
Ætli ég mun ekki detta
Ef til vill ofan á hey
Í sumar mun gleðin taka öll völd
Í útilegur og til útlanda ég fer
Ég vona bara að nátturan verði ekki köld
svo ég get týnt mér nokkur ber
Í haust mun það vera það besta
Rhodos mun taka mér vel
Tanið og ölið verða hið mesta
Ég vona bara að allt gangi vel
Til Akureyrar aftur við snúum
og busarnir bíða okkar æst
Í fyrstu við á þá púum
en svo getum við öll kæst
Lilja Sif
ælzdólgz
Jæja góðan daginnhér sit ég í íþrótta og þjálfara fræði eftir erfiða helgi. Ég er orðinn rosaleg fyllibytta en það er nú samt mjög gaman.
Það var sjallinn á laugardaginn þar sem Páll ,,Heiti" Óskar stóð fyrir glæsilegu balli. Þarna var alveg stappað og ég alveg á sneplunum!
Svo var sunnudagurinn ekki eins góður, ég ældi eins og múkki allann daginn og tók eina rusalegustu þynnku skitu dauðans.
En aftur að máli málana! ég er að fara suður eftir þennan vetur
ég ætla að fara að spila handbolta hjá Fylki með auði vinkonu minni
bæjó
P.s. ég heiti Siguróli Magni Sigurðsson
Hola amigas!dólgz

Örvæntingin er í loftinudólgz
Þar sem vinkonur mínar og meðeigendur enduðu á speed-dating á ratatosku núna í dag hef ég ákveðið að túlka það sem cry for help. Báðar eru þær myndarstúlkur og yndislegar en eitthvað er það sem hitt kynið hefur ekki fattað að þær eru báðar á lafandi lausu! Þar sem hérna fyrir neðan er auglýsing fyrir strák sem er einmitt á lausu og svífst einskis við að leita af blautum rottum þá hef ég ákveðið að taka sama pakka á þær og búa til smá auglýsingu handa þeim. Ég held þær verði alsælar með það!
Hér sáum við Þórdísi. Hún er myndarleg sem sóley á stóru túni í sólskininu. Hún lifir fyrir náttúruna og finnst fátt annað skemmtilegra en að fara í sveitina sína á Eskifirði setjast með nesti og kakó og drekka út í náttúrunni. Hún hefur haft það orð á sér að vera náttúrubarn og eins og hún hefur oft nefnt var hún getin einmitt á túninu á Eskifirði svo það kannski skýrir þessa náttúrufegurð sem Þórdís hefur. Þegar Þórdís er á Akureyri þar sem hún stundar nám labbar hún oft upp í fálkafell með nestið sitt og kakóið og reynir að ímynda sér að hún sé komin heim í sveitina. Hún fyllist löngun við sveitarloftið og þessi löngun verður oft að kynferðislegri löngun. Þannig ef þú áhugamaður góður hittir Þórdísi í sveitinni er aldrei að vita hvernig fundir ykkar enda?
Anna Gerður er hér mætt og myndin segir allt sem segja þarf, hún á alltaf svæðið sama hvort það sé uppi á sviði í kvosinni að segja frá kynlífssögum eða upp á elliheimili að baða gamla fólkið. Já ég sagði baða gamla fólkið en hún Anna er svalasta og langt um sætasta manneksjan sem vinnur á elliheimilinu. Hún labbar bara um svæðið og segir hey jó gamli í rúmið núna og fólkið þorir ekki að gera neitt annað en að hlíða því annars endar þetta illa. Fyrir gaura sem fíla harðar gellur er Anna ein af þeim. Hún lætur ekki einn né neinn segja sér fyrir verkum en inn við beinið þegar flaskan er orðin tóm og bjórkippan farin að minnka þá er Anna góðhjörtuð og skilningsrík svo best væri fyrir ykkur mínir kæru gaurar að hitta önnu í því ástandi svo hún taki ekki upp bekinn og pressuna og fara í pumpa í drasl fyrir framan ykkur og sína ykkur hver ræður!
Ef þú hefur áhuga á þessum heitu gellum þá bara að hafa samband og við plöggum deiti minn kæri!
dólgz
Hver hefur ekki lent í því að hafa fundist einhver (piltur já eða stúlka) myndarleg/ur og sjá svo mynd af aðilanum, svona tveggja til þriggja ára gamla, og þá bara jeremías, hvaða helvítis illfygli er þetta? þetta var akkúrat að koma fyrir mig núna rétt í þessu, og mikið lifandi skelfingar ósköp er ég þakklát.Annars er örugglega eitthvað að frétta, ég er ekki viss um að það sé áhugavert en allavega.
Ég og Linda Björk gáfum blóð í dag, nánar tiltekið í Blóðbankabílnum sem stóð á Glerártorgsplaninu í dag. Ég hafði orð á því við Lindu að þetta væri nú pínu eins og að fara á heilsugæslustöð í Úganda eða eitthvað þvíumlíkt (snobbið) en svo fórum við inn og þá var þetta bara svona helvíti huggulegt. Rútubílstjórinn var meira að segja þarna! Móttökukonan spurði okkur hvort við hefðum ekki borðað nóg í dag og ég ætlaði að vera voða sniðug og pattaraleg og sagði: "Jújú, við vorum í Brynju í dag!" - Konunni fannst ég ekkert kjút.
Við settumst niður með tékklistana okkar. Á honum stóð: "Gefið ekki blóð ef þið hafið stundað vændi" og Linda Björk greip að sjálfsögðu tækifærið og sagði brandara: Benti á blaðið og sagði: "Anna mín, vilt þú ekki bara sleppa þessu?" og: "Æ Anna ég þarf ekkert að segja að ég hafi verið kvefuð, eru ekki Íslendingar alltaf með kvef?" ég:"Já, bara svona eins og allir Íslendingar eru með AIDS?!" Við fengum ekkert of góðar undirtektir frá hinu fólkinu sem sat og beið, blóðbankinn er greinilega ekki staður til að gantast á.
Ég gerði svo aðra tilraun til að vera kjút þegar ég fór þarna inn fyrir til að láta mæla í mér blóðþrýstinginn þegar konan spurði mig hvort ég hefði ekki borðað nóg í dag og enn og aftur sagði ég að ég væri nýkomin úr Brynju en fékk ekkert betri undirtektir. Ég sem hélt að ég hefði svo gott lag á svona miðaldra konum.
Allavega, gáfum blóð, fengum kex og djús (hjúkkan hafði samt miklar áhyggjur af mér og lét mig drekka 3 safafernur, þar á meðal eina sem hún hélt upp að mér á meðan hún dældi B+ blóðinu mínu í pokann) en þetta er ekki búið. Allt í einu streymdu bara fréttamenn á staðinn, myndatökumaður, viðtalskona og ljósmyndari = N4 Crewið. Jahérna hér. Sem betur fer kom Linda bara í sjónvarpinu á N4 (Engar áhyggjur Linda, það er endursýnt á klukkustundarfresti, þú getur sýnt mömmu þinni) mér til mikillar ánægju þar sem að ég leit ekkert sérstaklega vel út, nýbúin í vatnsslag við Vigfús og svona já nett mygluð. Ég meina þetta er nú einu sinni N4 og núna er N4 komið á Digital Ísland og allt. Og svona var nú þessi ferð okkar í Blóðbankabílinn. Á leiðinni reyndum við að finna nafn á karakter sem gæti hvatt fólk til þess að verða blóðgjafar en okkur datt ekkert skárra í hug en Blóðálfurinn, og það er eiginlega bara ekkert krúttlegt, frekar svona goth finnst mér.
Annars er Lilja búin að vera endalaust lengi veik og allir að verða geðveikir á að hafa hana ekki í skólanum, Þórdís hefur ákveðið að hössla Björn Jörund um helgina og ég er búin að enduruppgötva Crash Bandicoot. Svo sýndu bekkjarfélagar okkar og sönnuðu í dag að það eru eintómir gangsterar í G-Unit með því að mótmæla, hópskrópa í tímapróf og fara bara í Brynju í sólinni. Það eru reyndar alveg haldbær rök fyrir öllu þessu en ég er svo dofin í handleggnum eftir blóðgjöfina að ég ætla bara að fara að tjilla.
l8rz
EGILLdólgz
Þetta er Egill Örn.
(og lilja)
Egill Örn stundar nám við Menntaskólann á Akureyri. Hann er í þriðja bekk, G nánar tiltekið, á félagsfræðibraut. Egill er greindur yfir meðallagi, kurteis, skemmtilegur og einstaklega mikill herramaður. Egill er einhleypur eins og er en við hér á Miklu flottari en þú erum ekkert að fíla það neitt sérstaklega, því Egill er allsvakalegur fengur sem kvenþjóðin ætti að slást um.
Egill Örn hefur ekki notið eins mikillar athygli á þessari þessari vefsíðu og til dæmis Vigfús Fannar, en nú eru breyttir tímar. Framvegis verður Egill til umræðu við hvert tækifæri sem gefst. Þar að auki þarf Vigfús ekki á auglýsingu að halda þar sem að sögur herma að hann sé að hössla út um allan bæ, sífiktandi í einhverjum rottum.
dólgz
Systir mín sagði mér þennan brandara:Tveir ljóshærðir menn leigðu saman litla íbúð. Eldur braust út í íbúðinni
eina nóttina og þeir hlupu út á svalir.
"HJÁLP, HJÁLP," kallaði annar þeirra.
"Kannski hjálpaði það ef við kölluðum saman!" sagði hinn.
"Góð hugmynd," sagði sá fyrsti og þeir kölluðu í kór:
"SAMAN, SAMAN ..."
Hún er 25 ára.
all by myselfdólgz

Ég er svoo södd. Mér leiðist. Ég er svo ein. Besti vinur minn þessa dagana er ellefu ára bróðir minn. Hann ákvað samt að stinga mig af. Þannig að nú heng ég bara með pabba eða mömmu. Við rúntum og leigjum spólur. stuð. Líkamsræktaraðstaðan hérna sökkar. Ég fékk tvo strauma gafst upp og fór heim og fékk mér súkkulaði. Ég fann samt besta tyggjó í heimi. Það er grænt epla og melónu og fæst í krónunni. Nú sit ég bara og tygg og læt mér leiðast. Hvað er samt málið með þessar verðhækkanir. Eitt kók í dós 160 kr. Kannski er það samt bara shell að okra. Hvað veit ég? Það er samt ball á morgun. Með á móti sól. Ég ætla að fara. Samt nenni ég ekki. Eskfirðingar eru svo skrítnir. Mig langar að fara á N3 í sjallanum. Þetta er mjög niðurdrepandi og leiðinlegt blogg. svona eins og ég, þessa dagana. ég kann samt ekki að blogga. þetta er í fyrsta sinn sem ég blogga. Ég tek samt gleði mína aftur á morgun. þá kemur íris. ég var í fermingu áðan. ég kann ekki svona veislur. sit bara og horfi út í loftið. samt hló ég smá. samt bara innan í mér. ég sagði nefnilega svo fyndna brandara við sjálfan mig. Mér langar í slúður. Lilja ég treysti á þig.
Með kveðju og gleði í hjarta
Þórdís


dólgz
Helgin sem leið var ógó fun. Allir voru að digga alla og sumir digguðu suma meira en aðra en það er önnur saga, eða kannksi bara sagan sem ég ætla að segja núna hver veit?Á föstudaginn kláraðist skólinn stundvíslega kl 14:30. Hemmi og Böbbi gerðu sér glaðan dag og fengu sér bjór í tilefni helgarinnar og tilefni heimspekiritgerðar. Þrátt fyrir áfengisneyslu og náðu þeir að afreka 1 og hálfa blaðsíðu en eftir það slóu þeir þessu upp í kæruleysi og sturtuðu í sig! Toppárangur!
Á laugardaginn var dagur dagana, jafnvel dagur dansana! Sumir vöknuðu hálf 7 um morgunin og héldu suður yfir heiðar en létu það ekki stoppa sig því haldið var á djammið um kvöldið. Dólgar dólagna voru auðvitað Þórdís og Anna Gerður en þær gerðust sleikkóngar ársins. Ekki er vitað við hverja þær fóru í sleik við eða hvar þær enduðu en allavega þá eru talið að busar eigi stóran part af þessu öllu saman. Þóra hélt sínu striki áfram en engar fréttir hafa fengist af fúsa sem hefur verið slúðurkóngurinn á þessari síðu. Ætli hann hafi ekki bara verið heima að dúlla við sig?

Ælti þetta sé fúsi að dúlla við sig um helgina?

Þetta erum við í sjallanu um helgina

Ælti þetta sé annahvort Anna eða Þórdís í sleik um helgina?
Lilz dólgz

PARTÝSKÓNAdólgz
Ég er að blogga fyrir heitasta aðdáanda þessarar vefsíðu. Vigfús, við elskum þig.Ég man ekki hvort það var einhver gáfaður eða bara einhver gaur í einhverjum þætti sem ég horfði á sem sagði að internetið væri bara notað til tvenns (tvenns? fyndið. kannski er ég ekki að nota þetta rétt, að hugsa sér..) og það er til að skoða klám og til að kvarta. Mér finnst alveg svakalega gaman að gera bæði og ætla að nota tækifærið og gera það síðarnefnda.
Kennarar í MA, hvað er uppí rassinum á ykkur þegar kemur að heimildaskrám í ritgerðum? Haldið þið virkilega að það sé bara ekkert mál að vita hvernig þið viljið allir hafa heimildirnar í ritgerðum sem er skilað til ykkar, þegar þið eruð ekki með sama háttinn á því? Fjandinn hafi það, ég þoli ekki að gera heimildaskrá..
Starfsfólk Sýslumannsskrifstofunnar á Akureyri, hvað er eiginlega uppí rassinum á ykkur? Eða þurfið þið kannski að fá eitthvað uppí rassinn, er það málið? Hvernig væri að bjóða góðann daginn kurteisisilega svona endrum og eins, en ekki breytast í eitthvað þríhöfða, kynkalt skrímsli þegar fólk ber að dyrum? Ég get svo svarið það, þið fáið heldur ekki borgað fyrir að sitja og spjalla í símann við hinar miðaldra vinkonur ykkar á vinnutíma á meðan saklaus stúlka eins og ég sem þarf að mæta í heimspeki eftir þrjár mínútur bíður eftir þjónustu. Fáið ykkur bara að ríða eða eitthvað.
.rar. Hvað er málið með það! Halló, ég vil horfa á One Tree Hill áður en ég fer að sofa og það strax!
Frumspeki. Hvað í andskotanum? Mér er nokk sama hvort stólinn sem ég sit á sé þarna af því að hann er þarna eða af því að hann er skuggamynd frumefna sem eru einhverstaðar annars staðar!
Body Balance. Drepið mig bara núna, þetta er svo leiðinlegt. Rísandi stjarna! Útsprungið blóm! Gullfoss og Geysir, blablabla!
En svona án djóks, þá er þessi vika búin að vera svo leiðinleg að það hálfa væri nóg. Ritgerðir, heimildir, klesstir bílar og ég veit ekki hvað og hvað. En ég sé ljósið, helgin. Fríhelgi, tjútt.
Þórdís, farðu nú að koma með eitthvað gott hérna. Emo ljóðið eða eitthvað, það er gott stöff. Jah, eða bara live sex show, það er líka alveg meiriháttar.
Anna Gerður - sem kann ekki að reima - en reimar þó.

Spice girls forever
